Persónuvernd
HBHF er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem Orkugreind geymir. Hér stendur hvað er geymt, til hvers og hvernig þú losnar við það.
Heilsufarsgögnin þín eru hjá þér
Allt sem þú skráir í kerfið, Dagbókin, formið Dagurinn minn, vinnublöðin og samtölin við hjálparann, er í þínu eigin Google Drive og í þínum eigin Claude-reikningi. Orkugreind sér aldrei þessi gögn, geymir þau ekki og hefur engan aðgang að þeim. Google og Anthropic (sem gerir Claude) vinna þau samkvæmt þeirra eigin skilmálum og þínum stillingum þar.
Láttu mig vita
Ef þú biður okkur að láta þig vita þegar næsta námskeið eða sjálfsþjálfunin opnar, fer netfangið þitt, og nafnið ef þú gafst það upp, til HubSpot. HubSpot geymir það fyrir okkur og sendir tilkynningarnar. Það er unnið með samþykki þínu, og þú getur afskráð þig í hverjum pósti eða beðið okkur að eyða því.
Námskeiðið í desember heldur ME félag Íslands, og skráningin á það fer fram hjá félaginu, samkvæmt þeirra persónuvernd.
Þegar sjálfsþjálfunin opnar
Sjálfsþjálfunin er ekki komin í sölu, og þess vegna er enn engin innskráning eða kaup á síðunni. Þegar hún opnar gildir líka það sem stendur hér fyrir neðan.
Það sem Orkugreind geymir
- Netfang og nafn: til að skrá þig inn, senda þér innskráningartengla og kvittanir og sýna nafnið þitt á kennslustundunum.
- Kaup: dagsetning, upphæð, afsláttarkóði ef einhver var og hve lengi uppfærslur gilda. Kortaupplýsingar koma aldrei til okkar.
- Tæki: hvaða tæki eru innskráð (tegund vafra og hvenær það sást síðast), svo þú getir verið á allt að þremur tækjum og skráð tæki út.
- Framvinda: hvaða kennslustundum þú hefur lokið og hvaða leið þú valdir.
- Innskráningarbeiðnir: netfang og IP-tala í stuttan tíma, til að hindra að tenglar séu sendir í sífellu.
- Sendur póstur: hvaða póstur var sendur á hvaða netfang og hvenær, svo enginn fái sama póstinn tvisvar.
Þetta er unnið til að efna kaupsamninginn við þig.
Hverjir vinna upplýsingarnar fyrir okkur
- Straumur tekur við greiðslunni. Kortaupplýsingarnar þínar fara beint til Straums.
- HubSpot geymir netföng þeirra sem biðja okkur að láta sig vita og sendir þann póst.
- Brevo mun senda póstinn sem fylgir kaupunum: innskráningartengla, kvittanir og tilkynningar um uppfærslur.
Þessi fyrirtæki vinna upplýsingarnar aðeins fyrir okkur og samkvæmt samningi. Við seljum aldrei upplýsingar og deilum þeim ekki með öðrum.
Vafrakökur
Síðan setur aðeins þær vafrakökur sem þarf til að þú haldist innskráð eða innskráður. Engar vafrakökur eru notaðar til greiningar eða auglýsinga, og þess vegna er enginn kökuborði. Valið á milli ljóss og dökks útlits er geymt í vafranum þínum og fer aldrei til okkar.
Hve lengi
Á meðan þú átt aðgang geymum við upplýsingarnar. Þegar þú eyðir aðganginum á Mínum síðum eyðast netfang, nafn, tæki og framvinda. Kaupin sjálf eru geymd án nafns og netfangs eins lengi og lög um bókhald krefjast.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvað er geymt um þig, fá það leiðrétt og láta eyða því. Hafðu samband ef þú vilt nýta þann rétt. Þú getur líka leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Ekki læknisráð
Orkugreind er ekki meðferð og er ekki læknisráð. Hún kemur ekki í stað læknis.